BIO: Kristjana Björk Barðdal
Kristjana Björk Barðdal, stofnandi og framkvæmdastjóri Furu.
Kristjana er verkfræðingur sem hélt að hún væri kassalaga því hún elskar skipulag en fattaði að hún þrífst best í skapandi og skemmtilegu umhverfi - svo hún stofnaði FURA media.
Hún elskar nefnilega samfélagsmiðla og fréttamiðla og brennur því fyrir að deila sinni innsýn þegar kemur að því að koma vöru, þjónustu, einstakling, fyrirtæki, vörumerki eða hugmynd á framfæri. Því hún finnur sig best við að koma skipulagi á kaos, keyra áfram herferðir og sjá verkefni verða að veruleika með fólki sem fær að vera það sjálft. Mikilvægast er þó af öllu að það verður að vera gaman - annars er svo leiðinlegt.
Hún stofnaði Furu því henni fannst vanta fyriræki sem nær yfir allt spektrúmið - ekki bara veita faglegt umboð fyrir áhrifavalda, heldur aðstoðar líka einstaklinga, vörumerki og fyrirtæki að koma sér á framfæri.
Með Furu vill hún búa til samfélag þar sem við getum öll komið hugmyndum okkar á framfæri og mögulega í framkvæmd - með einlægni, heiðarleika og smá húmor að leiðarljósi.