top of page

Áhrifavalda-
námskeið Furu

4 vikna fjarnámskeið fyrir þau sem vilja byggja sig upp sem áhrifavaldar. Hagnýt verkefni, opin Q&A og ráðgjöf þar sem þú leggur grunninn að faglegum samskipti og vinnubrögðum þegar kemur að samstörfum og miðlunum þínum.

Næsta námskeið hefst í lok september.

Einungis 10 pláss í boði.

IMG_0262_edited.jpg

Leiðbeinandi er Kristjana Björk Barðdal, stofnandi & framkvæmdastjóri Furu

Kristjana brennur fyrir að hjálpa fólki að nýta samfélagsmiðla til að skapa tækifæri og koma sér á framfæri.  Með bakgrunn í verkfræði og tölvunarfræði sameinar hún stefnumótun, skipulag og tækniþekkingu með innsæi í hegðun fólks.

Hún hefur verið virk á LinkedIn og TikTok, tekið þátt í kosningabaráttum, unnið í útvarpi og verið hlaðvarpsstjórnandi. Kristjana þekkir leikinn bæði fyrir framan og á bakvið tjöldin og getur auðveldlega aðstoðað þig að byggja upp sterkt vörumerki og ná árangri.

Hvað verður farið yfir á námskeiðinu?

Frekari upplýsingar

Fyrir hverja er námskeiðið?

Námskeiðið er fyrir alla sem vilja byggja sig upp sem áhrifavaldur og læra að byggja upp prófíl sem laðar að samstörf. Það hentar þeim sem vilja skapa efni sem virkar, finna sín gildi, skilja tölfræðina og læra að vinna með fyrirtækjum og vörumerkjum.

Til að taka þátt þarftu að vera farin/n/ð að birta efni á samfélagsmiðlum, svo þú getir tekið fullan þátt í umræðum og unnið verkefnin.


Það eru einungis 10 pláss á námskeiðinu.


Hvað verður farið yfir?

Við förum í grunnatriði birtingarmyndar, gildanna þinna og hvernig nálgast má vörumerki og fyrirtæki. Þú færð hagnýt verkefni og persónulega leiðsögn sem hjálpar þér að ná árangri.


Hvernig virkar umsóknarferlið og eru einhver inntökuskilyrði?

Þú fyllir út umsóknarformið og færð svar innan 3 virkra daga eða fyrir 19. ágúst. Ef þú færð pláss, færðu greiðsluupplýsingar og allar nauðsynlegar upplýsingar áður en námskeiðið hefst.

Námskeiðið er opið öllum sem vilja læra og bæta sig – óháð fjölda fylgjenda eða fyrri reynslu.

Innifalið:
  • Vikuleg verkefni sem aðstoða þig að þróa prófílinn þinn og efnisgerð (e. content creation).

  • Opið Q&A þar sem þú getur spurt spurninga og fengið lausnir við áskorunum.

  • Leiðsögn við að finna og skilgreina gildin þín.

  • Hagnýtar aðferðir til að byggja upp trúverðuga og faglega birtingarmynd.

  • Skref-fyrir-skref leiðbeiningar við að nálgast vörumerki og fyrirtæki.

  • Ráð um hvernig þú nærð árangri í samstarfi og byggir langtímasambönd.

  • Möguleiki á 1:1 ráðgjöf þar sem þú færð persónulega endurgjöf


Verð

Námskeiðið kostar 69.900 kr. sé það greitt innan við 3 dögum frá því að umsókn er staðfest.

Hægt er að skipta greiðslu á námskeiðinu í tvær greiðslur upp á 39.900 kr.


Styrkir

Hægt er að sækja um styrk fyrir námskeiðsgjöldum hjá stéttarfélögum. Kannaðu þinn rétt innan þíns stéttarfélags.


Vinsamlegast hafið samband við okkur hjá FURA media í gegnum Instagram eða með því að senda á netfangið kristjana@furamedia.is til þess að fá nánari upplýsingar.

  • LinkedIn
  • Facebook
  • TikTok
  • Instagram

Einungis 10 pláss í boði.

Algengar spurningar

IMG_0054_edited.jpg

Skrá mig á póstlista til að fylgjast með næstu námskeiðum:

Takk fyrir að skrá þig á póstlistann til að fylgjast með næstu námskeiðum.

bottom of page